Miðgarðsormur - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðgarðsormur - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

  • Yayın yılı: 2017
  • Dil: İzlandaca
  • Süre: 5:36

Şarkının sözleri aşağıdadır Miðgarðsormur , sanatçı - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands çeviriyle birlikte

" Miðgarðsormur " şarkısının sözleri

Çevirili orijinal metin

Miðgarðsormur

Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sjórinn rauður sýður

Í sortanum hann bíður

Dagrenning og dauðastormur

Í djúpinu er Miðgarðsormur

Gakktu út á gróinn núp

Gáðu hvað mun prýða undirdjúp

Þarna yfir sjó og sand

Sérðu áfram líða Jörmundgand

Mæli ég því mikill er

Miðgarðsormur þræðir lönd og sker

Hann sem mig skal hitta vill

Hörfa þegar blæðir, kjarklítill

Renni ég færinu í fyrsta sinni

Festi við þóftu í kænu minni

Annað sinn kasta, hann ekki bítur

Ósnertri beitunni loks upp skýtur

Höfuð nautsins Himinhrjóðs

Hilmar ormi færir, ei til góðs

Bannvænn sýnist bitinn þó

Blóðið Gandsins ærir hugarró

Fylgja mun þér fegurð, ef

Fellir orminn langa, sérhvert skref

Eiturgusa æta má

Ásjónu og vanga, tapi sá

Þriðja sinn kasta og þá hann tekur

Þóftuna mölvar og bátinn skekur

Færið skal dregið af fullum krafti

Fátækleg hönd móti ormsins kjafti

Reipið sker, gatar glófa

Gegnum fer, særir lófa

Krókur í kjaftinn rífur

Krækjan því sker sem hnífur

Áfram þeir berjast báðir

Bræður tveir, þreyttir, þjáðir

Takast á, tíminn líður

Tengir þá strengum stríður

Höfuðið birtist í hafsins róti

Heggur í bátinn og streitist á móti

Blaðinu sting svo að blóð út stekkur

Bölvandi skepnan í hafrótið sekkur

Þegar hitti Þór

Þá munum við berjast

Staðfastur og stór

Standa mun og verjast

Agnið beit víst á

Ásgarður mig svíkur

Jörmundgandur, já

Ég er sá sem víkur

Báru klýfru bátur

Og bátsmaður er kátur

Landið tekur, fleyið festir

Þar fljúga yfir nokkrir þrestir

Aftru skepnan skríður

Í skjól og þar hann bíður

Létti til og lægði storminn

Er lagði Hilmar Miðgarðsorminn

2 milyondan fazla şarkı sözü

Farklı dillerde şarkılar

Çeviriler

Tüm dillere yüksek kaliteli çeviriler

Hızlı arama

İhtiyacınız olan metinleri saniyeler içinde bulun